Dagana 3. – 4. febrúar verður fyrsta varða vorannar í dagskóla. Gera má ráð fyrir að kennarar boði nemendur í viðtal/verkefni annan hvorn daginn. Nemendur munu fá vörðueinkunn í einstökum áföngum. Einkunnirnar eru eftirtaldar auk stuttra umsagna:
G = Gott
T = Tækifæri til umbóta
Ó = Ófullnægjandi
X = Ekki eru forsendur fyrir mati
Vörðueinkunnir hafa ekki áhrif á lokaeinkunn. Tilgangurinn er fyrst og fremst að gefa nemendum hugmynd um stöðu á þessum tímapunkti og hvetja þá til dáða í náminu.
Nemendur eru beðnir að fylgjast vel með skilaboðum kennara um boð í viðtöl og/eða verkefnaskil. Þeir nemendur sem ekki hafa verið boðaðir í viðtal, en óska eftir því, eru beðnir um að senda skilaboð til viðkomandi kennara. Vinsamlegast athugið að hefðbundin kennsla fellur niður þessa daga.