Lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna voru samþykkt af Alþingi 22. júní 2021. Í lögunum kemur fram að nemendur undir 18 ára aldri og fjölskyldur þeirra geti óskað eftir stuðningi tengiliðs sem veitir upplýsingar og leiðbeiningar um sérhæfða þjónustu innan og utan skólans. Til að óska eftir þjónustu þurfa forsjáraðilar að hafa samband við tengilið skólans. Tilgangurinn er að auka samstarf þjónustuaðila í þágu farsældar barna og tryggja að börn og foreldrar sem á þurfa að halda hafi aðgang að þjónustu við hæfi.

Tengiliður vegna farsældarþjónustu:

Hrafnhildur Guðjónsdóttir hrafnhildurg@fnv.is

Farsæld barna

Farsæld barna