Félagsvísindi í kvikmyndum
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Nemandi þarf að hafa lokið áföngunum FÉLV2IF05, FÉLA3SH05 og SÁLF2NS05
Nemendur kynna sér hvernig viðfangsefni félagsfræði, sálfræði og uppeldisfræði birtast í kvikmyndum. Annars vegar verða skoðaðar leiknar kvikmyndir, sem fjalla um viðfangsefni félagsvísinda og sýna þær fagstéttir sem starfa innan félagsvísinda. Hins vegar verða skoðaðar heimildamyndir, sem fjalla um þekktar rannsóknir í félagsvísindum og/eða mikilvæga atburði í sögu þeirra. Nemendur setja efni kvikmyndanna í fræðilegt samhengi og greina þær út frá þekkingu sinni á efninu.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Því hvernig félagsvísindi birtast á sjónvarpsskjánum, bæði í leiknu efni og fræðsluefni.
- að hvaða leyti sú mynd sem dregin er upp í sjónvarpi af félagsvísindum er raunsönn.
- Því hvernig nota má sjónvarpsefni til að varpa ljósi á viðfangsefni félagsvísindanna.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- beita þeirri þekkingu sem hann hefur á félagsvísindum til tala og skrifa um kvikmyndir.
- skoða kvikmyndir í ljósi félagsvísinda.
- miðla þekkingu sinni á birtingarmynd félagsvísinda í kvikmyndum í ræðu og riti.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- afla sér frekari þekkingar á viðfangsefni áfangans.
- rökræða við samnemendur um viðfangsefni áfangans.
- sýna frumkvæði í verkefnavinnu áfangans.
- leysa af hendi fjölbreytt verkefni í samvinnu við samnemendur.
- rökstyðja skoðanir sínar en taka um leið tillit til sjónarmiða annarra.
Nánari upplýsingar á námskrá.is