Auglýsing fyrir valáfanga
Meðal valáfanga í boði á haustönn 2022 eru:
SÁLF3PF05 Persónuleika- og félagssálfræði
- Hvernig tengjast kanínur í Himalaya fjöllum greind okkar?
- Stendur fólk í alvöru bara hjá og hringir ekki á lögguna þegar ung kona er myrt úti á götu?
- Er það satt að við séum öll haldin fordómum gagnvart þeim sem eru öðruvísi en við sjálf?
Svörin við þessu og svo mörgu öðru færðu í Persónuleika- og félagssálfræði (SÁLF3PF05) sem í boði er á næstu haustönn. Í áfanganum er sjónum beint að einstaklingsmun og félagsverunni manninum. Við veltum fyrir okkur greind og greindarmælingum, persónuleikanum og persónuleikaprófum, félagslegri hegðun okkar og hvaða áhrif það hefur á okkur að vita af öðru fólki nálægt okkur.
Áfanginn er á þriðja þrepi og því æskilegt að nemandi hafi tekið sálfræði á 2. þrepi sem undanfara. Áfanginn er símatsáfangi og án lokaprófs í staðnámi.
UMHV1GF03 Umhverfisstjórnun, grænfánaverkefni
Í áfanganum kynnast nemendur verkferlum umhverfisstjórnunar og læra að nýta sér þætti umhverfisstjórnunarkerfis sem verkefnið Skólar á grænni grein byggir á. Nemendur ganga þannig í gegnum sjö skref umhverfisstjórnunar, sem er alþjóðlega viðurkennd aðferð og notuð um allan heim. Þau eru eftirfarandi:
- að stofna umhverfisnefnd
- að meta stöðu umhverfismála
- að útbúa aðgerðaráætlun í umhverfismálum
- að sinna eftirliti og endurmati
- að búa til námsefni og tengja við aðalnámskrá
- að upplýsa og fá aðra með
- að semja umhverfissáttmála og umhverfisstefnu
Nemendur velja sér jafnframt þema til að vinna með af þeim þemum sem í boði eru innan verkefnisins.
Einnig eru í boði FABL1FA02 Fablab grunnur og FABL2SK01 Þrívíddarhönnun.
Nemendur geta valið áfanga af öðrum brautum til að setja í frjálst val.
Val í dagskóla og helgarnámi fyrir haustönn 2022 fer fram dagana 23. febrúar til 2. mars í INNU.