rafræn, sjúkraskrá
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: UTN103 eða sambærilegur áfangi í eldri námskrá
Í áfanganum er fjallað um skráningu og meðferð persónuupplýsinga í sjúkraskrá, varðveislu þeirra gagna, þagnarskyldu um upplýsingar í sjúkraskrám og rafræna sjúkraskrá. Farið í lög um sjúkraskrá, réttindi sjúklinga, hlutverk og skyldur heilbrigðisstarfsfólks í tengslum við sjúkraskrá. Upplýsingaleit á netinu m.a. skoðaður gagnagrunnar fyrir heilbrigðisvísindi, leitað verður í þessum gagnagrunnum að upplýsingum og nauðsyn þeirra metin. Fjallað er um uppsetningu ritgerða, áreiðaleika heimilda og uppsetning ritgerða samkvæmt APA tilvísunarkerfinu.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- hvað sjúkraskrár eru, varðveislu þeirra og á hvaða formi þær eru varðveittar
- hvaða lög gilda um réttindi sjúklinga, sjúkraskrár og heilbrigðisstarfsfólk
- upplýsingaleit í heilbrigðisvísindum og mat á áreiðanleika þeirra
- gerð heimildaritgerða og heimildanotkun
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- skrá samkvæmt skráningarkerfum sem notuð eru í heilbrigðiskerfinu og geta leitað í rafrænni sjúkraskrá að upplýsingum
- leita á vefnum að upplýsingum um heilsu, heilbrigði og hjúkrun og meta trúverðugleika þeirra
- kynna lög um sjúklinga, sjúkraskrá og heilbrigðisstarfsfólk á greinagóðan hátt
- skrifa heimildaritgerð skv. apa heimildaskráningakerfinu.
- virða þagnarskyldu
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- rökstyðja lög er varða sjúklinga, heilbrigðisstarfsfólk og umhverfi þeirra
- geta nýtt sér heilbrigðisgagnagrunna á netinu
- meta áreiðanleika heimilda á netinu
- skrifa heimildaritgerð samkvæmt viðurkenndum aðferðum
- leita í sjúkraskrám að upplýsingum, sem þar eru.
- a
Nánari upplýsingar á námskrá.is