Peningar, tímahugtök, verðgildi
Einingafjöldi: 3
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Unnið verður með alla þætti íslenskunnar þar sem grunnþátturinn heilbrigði og velferð verður hafður að leiðarljósi. Áhersla verður á andlegt, líkamlegt og félagslegt heilbrigði, en einnig verður samspil einstaklings, aðstæðna og umhverfis skoðað og rætt. Notast verður við aldursmiðaðar bókmenntir, sjálfshjálparbækur, íslenska tónlist og fjölbreytt verkefni. Megin áhersla verður á að nemendur viðhaldi og byggi ofan á þann grunn sem þeir búa nú þegar að.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- hvar og hvenær stærðfræði kemur við sögu í daglegu lífi
- gildi peninga
- fjölbreytileika verslana
- verðgildi hinna ýmsu hluta
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- nýta sér stærðfræðikunnáttu sína í daglegu lífi
- kanna hvað hlutir kosta í verslunum og á neti
- fylgja dagsskipulagi
- fylgja tímaáætlun
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- taka þátt í stærðfræðilegum athöfnum daglegs lífs
- Átta sig á tíma- og dagsetningum
- nýta stærðfræðikunnáttu sína þegar hann verslar
- nýta sér viðeigandi stuðningstæki þegar það á við, s.s. reiknivél í símum
Nánari upplýsingar á námskrá.is