Peningar, tímahugtök, verðgildi
Einingafjöldi: 3
Þrep: 1
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Áhersla verður á tímahugtök og unnið verður með þau á fjölbreyttan hátt, s.s. í gegnum verkefnavinnu, veraldarvefinn og verklegar æfingar, t.d. að fara í strætó. Stefnt er að því að viðhalda og byggja ofan á þann grunn sem nemandi hefur þegar tileinkað sér.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- algengum tímahugtökum
- vikudögum
- mánuðum
- dagsetningum
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- lesa í og/eða nýta sér dagatal
- lesa á klukku
- breyta dagsetningu úr rituðu máli yfir í tölustafi
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- nýta sér tímahugtök í daglegu lífi
- Átta sig á árstíðum og þeim mánuðum sem tilheyra hverri árstíð
- nýta sér viðeigandi stuðningstæki þegar það á við, s.s. dagatal
- vera stundvís
Nánari upplýsingar á námskrá.is