Prósentureikningur
Einingafjöldi: 3
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Áhersla verður á prósentureikning með fjölbreyttri nálgun. Það verður m.a. gert með mismunandi verkefnavinnu, vettvangsferðum í verslanir, veraldarvefurinn verður notaður ásamt tilboðsbæklingum og spilum. Stefnt er að því að viðhalda og byggja ofan á þann grunn sem nemandi hefur þegar tileinkað sér.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- grunnatriðum í prósentureikningi
- tölum og reikniaðgerðum
- forgangsröðun aðgerða
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- beita prósentureikningi í einföldum dæmum
- temja sér gagnrýna en um leið skapandi hugsun
- leysa úr stærðfræðilegum prósentuupplýsingum
- tileinka sér sjálfstæð vinnubrögð
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- setja fram tölulegar upplýsingar
- skrá lausnir sínar á skipulagðan hátt
- reikna afslátt á vörum og/eða þjónustu
- beita skipulögðum aðferðum við lausn verkefna sem tengjast námsefninu
- lesa í umhverfi sitt, t.d. í auglýsingabæklinga þar sem vörur eru auglýstar með afslætti
- reikna út afslætti og tilboð
Nánari upplýsingar á námskrá.is