Starfsnám á vinnustað 1
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Starfsnám gefur nemendum tækifæri til þess að kynna sér ýmis störf og mismunandi vinnustaði. Námið felur í sér að nemendur þjálfist í að beita mismunandi aðferðum og verklagi. Starfsnám fer fram í skóla og á vinnustað. Með því að tengja námið við vinnustaði öðlast nemendur oft aðra sýn á námið í skólanum og tilgangur námsins verður skýrari.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- fjölbreyttum vinnustöðum
- fjölbreyttum starfsheitum
- mikilvægi þess að fara út á vinnumarkaðinn að skóla loknum
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- velja sér vinnustað út frá raunhæfum markmiðum
- mæta til vinnu á réttum tíma
- fylgja fyrirmælum
- fylgja hreinlætisreglum á vinnustað
- fylgja samskiptareglum á vinnustað
- fylgja öryggisreglum á vinnustað
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- taka þátt í atvinnulífinu
- hafa yfirsýn yfir mismunandi störf og starfsvettvang
- Þekkja mismunandi starfsheiti og átta sig á hlutverkum sem felst í þeim
- tilheyra starfsmannahópi
Nánari upplýsingar á námskrá.is