Réttindi og skyldur
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Nemendur þjálfast í að taka þátt í atvinnulífinu og fá fræðslu um réttindi og skyldur launþega. Kennsla fer fram í skóla og úti á vinnustöðum. Með því að tengja námið við vinnustaði öðlast nemendur oft aðra sýn á námið í skólanum og tilgangur námsins verður skýrari.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- fjölbreyttum vinnustöðum
- að launakjör eru mismunandi eftir starfshlutfalli og ráðningarsamningum
- mikilvægi þess að fara út á vinnumarkaðinn að skóla loknum
- mikilvægi þess að öllum réttindum fylgja ákveðnar skyldur
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- nálgast launaseðla í gegnum tölvu, s.s. í heimabanka
- lesa launaseðla
- fylgja þeim skyldum sem krafa er gerð um á vinnustöðum
- vera meðvitaður um eigin réttindi á vinnumarkaði
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- taka þátt í atvinnulífinu
- hafa yfirsýn yfir réttindi og skyldur launþega á Íslandi
- geta nýtt sér upplýsingar sem koma fram á launaseðli
- taka þátt í umræðum um réttindi og skyldur á vinnustöðum
Nánari upplýsingar á námskrá.is