Sagnfræði
Einingafjöldi: 4
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Unnið verður með ensku á fjölbreyttan hátt eftir stöðu hvers og eins. Nemendur munu vinna verkefni og lesa texta sem tengjast nokkrum merkum atburðum í mannkynssögunni. Notað verður aldursmiðað efni við hæfi hvers og eins sem gefur innsýn í mannkynssöguna. Áhersla er á að námið verði áhugahvetjandi og að nemendur geti í leiðinni fræðst um og rifjað upp merka atburði í mannskynssögunni.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- hugtakinu mannkynssaga
- að sagan hefur áhrif á okkur öll
- Ólíkum æviskeiðum manna
- mikilvægi tjáningar og hlustunar
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- að reynsla forfeðra okkar getur nýst okkur í nútímanum
- Átta sig á fjölbreytileika samfélagsins og mismunandi menningarheimum
- að hægt er að nálgast viðfangsefni á fjölbreyttan hátt
- tjá sig í mæltu og/eða rituðu máli
- taka þátt í umræðum
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Átta sig á mikilvægi þess að kunna skil á helstu þáttum mannkynssögunnar
- virða reynslumeira og eldra fólk
- hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
- taka þátt í umræðum um sögulega atburði
Nánari upplýsingar á námskrá.is