lagatextar, tónlist
Einingafjöldi: 4
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Unnið verður með ensku í gegnum tónlist og dægurlagatexta. Áhersla verður á klassíska, popp- og rokktónlist í bland við það sem er vinsælast hverju sinni. Nemendur verða hvattir til að velta fyrir sér hvað textaskáldið er að segja í textunum. Nemendur bæta þannig jafnt og þétt við orðaforða og hugtakaskilning sinn.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- hvaða sögu textaskáldin eru að miðla hverju sinni
- að oft má tengja saman áhugamál og nám
- sköpun í formi ljóðagerðar og textasmíðar
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- hlusta á og vinna með mismunandi texta og ljóð
- virða tónlistarsmekk annarra
- Átta sig á fjölbreytileika samfélagsins og mismunandi tegund tónlistar
- taka þátt í umræðum
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- efla orðaforða sinn
- Átta sig á að margir textar hafa ákveðinn boðskap
- spyrja spurninga og hlusta á það sem aðrir hafa áhuga á
- láta skoðanir sínar í ljós
Nánari upplýsingar á námskrá.is