Netöryggi
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Í áfanganum fá nemendur kynningu á notkunarmöguleikum tölvunnar og fræðast um örugga netnotkun og óskrifaðar og skrifaðar reglur á samskiptavefjum og bloggsvæðum.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- að tölvur eru stór hluti af lífi okkar
- mikilvægi þess að fylgja ákveðnum umgengisreglum við tölvunotkun
- mikilvægi þess að vanda tölvusamskipti eins og önnur samskipti
- Því að það er ekki allt satt og rétt sem sett er á veraldarvefinn
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- að greina á milli þess hversu áreiðanlegar upplýsingar eru á netinu
- að nýta sér netið á öruggan og ánægjulegan hátt
- vinna með texta sem hann hefur lesið og/eða hlustað á
- nota samskiptavefi á borð við facebook á sem öruggastan hátt
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- lesa í og/eða nýta sér upplýsingar sem koma fram á síðum eins og saft og öðrum síðum sem kenna örugga netnotkun
- auka sjálfstraust sitt og trú á eigin tölvulæsi
- hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
- lesa í umhverfi, samskipti, tilfinningar og reglur í þeim tilgangi að átta sig á hvað er viðeigandi hverju sinni
- Þekkja muninn á því sem er raunverulegt og óraunverulegt
- lesa í leik-og samskiptareglur
Nánari upplýsingar á námskrá.is