Heilbrigði, forvarnir, nám, skóli
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Áhersla verður á andlegt, líkamlegt og félagslegt heilbrigði. Einnig samspil einstaklings, aðstæðna og umhverfis. Notast verður við atburði líðandi stundar sem umræðuefni og sögulegar staðreyndir. Megin áhersla verður á að nemendur viðhaldi og byggi ofan á þann grunn sem þeir búa nú þegar að.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- hugtökunum, heilbrigði og velferð
- mikilvægi þess að nýta hæfileika sína
- mikilvægi þess að borða hollt og gott
- mikilvægi hreyfingar og hvíldar
- hugtökunum: hollusta, hvíld, hreyfing, hreinlæti, hamingja, hugrekki og kynheilbrigði.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- skoða og meta eigið heilbrigði og eigin velferð
- vinna með öðrum
- taka tillit til annarra
- sýna samkennd
- taka þátt í umræðum og tjá eigin skoðanir
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- vera meðvitaður um styrkleika sína
- að spyrja spurninga og hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
- tileinka sér jákvætt hugarfar
- auka eigið heilbrigði og velferð
Nánari upplýsingar á námskrá.is