ÍSLE1MB05 - Íslenska með áherslu á bókmenntir

bókmenntir og ritun, málnotkun

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Unnið verður með alla þætti íslenskunnar þar sem bókmenntir verða hafðar að leiðarljósi. Nemendur fá tækifæri til að nema í gegnum bókmenntir og vinna með þær á fjölbreyttan hátt. Áhersla er á að nemendur bæti orðaforða sinn í ræðu og/eða riti, efli sjálfstraust sitt og trú á eigin málfræðinotkun í máli og/eða riti. Einnig að nemendur auki les- og/eða hlustunarskilning sinn og æfist í að skilgreina hugtök sem koma fram í texta. Notast verður við umræður, ígrundun og þjálfun nemenda í að tjá skoðanir sínar í gegnum uppbyggilegar samræður. Notast verður við aldursmiðaðar bókmenntir, sjálfshjálparbækur, íslenska tónlist og fjölbreytt verkefni. Megin áhersla verður á að nemendur viðhaldi og byggi ofan á þann grunn sem þeir búa nú þegar að.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • aldursmiðuðum bókmenntum
  • uppbyggingu bóka
  • mikilvægi lestrar/hlustunar sem nýtist í daglegu lífi
  • að íslenskukennsla er fjölbreytt og áhugamiðuð

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • nýta sér og/eða tileinka sér nýjan orðaforða
  • lesa og/eða hlusta á mismunandi texta sér til gagns og gleði
  • tjá skoðanir sínar

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • nýta sér bókmenntir í daglegu lífi til gagns og/eða gleði í hvaða formi sem er, t.d. ritaðar bækur, hljóðbækur og rafbækur
  • spyrja spurninga og hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
  • láta skoðanir sínar í ljós
  • að auka sjálfstraust í ræðu og/eða riti
Nánari upplýsingar á námskrá.is