Stöðvaþjálfun
Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Nemendur gera ýmsar æfingar á stöðvum sem auka líkamlegan styrk, þol og liðleika þeirra.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- að fara ekki of geyst af stað
- að ýmsar hættur geta leynst í tækjasal
- að hreyfing er holl og góð fyrir líkamann
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- að nota fjölbreytt líkamsræktartæki
- að gera fjölbreyttar æfingar
- að bæta líkamlegt ástand
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- nýta sér styrktarþjálfun sem valkost í hreyfingu
- bæta líkamasástand sitt
- sækja tíma í líkamsræktarstöðvum og nýta sér þjónustu
Nánari upplýsingar á námskrá.is