Vinnustaðir
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Í þessum áfanga fá nemendur tækifæri til að kynna sér mismunandi vinnustaði. Við val á vinnustöðum verður tekið mið af óskum nemenda. Starfsnámið verður skipulagt í samráði við vinnuveitendur og hefur kennari eða annar starfsmaður skólans umsjón með starfsnáminu. Nemendur vinna eftir vinnulistum sem taka mið af aðstæðum hverju sinni.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- fjölbreyttum vinnustöðum
- undirstöðuþáttum þess vinnustaðar sem hann kýs að sinna í sínu starfsnámi
- Þeim áhöldum, tækjum og tólum sem ætlast er til að viðkomandi nýti sér eða meðhöndli úti á vettvangi
- hættum sem geta verið í starfsumhverfinu
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- velja sér vinnustað út frá raunhæfum markmiðum
- vinna sjálfstætt eða undir leiðsögn
- fylgja fyrirmælum
- fylgja hreinlætisreglum á vinnustað
- fylgja samskiptareglum á vinnustað
- koma sér til og frá vinnu á réttum tímum
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- taka þátt í atvinnulífinu
- biðja um aðstoð ef þess þarf
- tilheyra starfsmannahópi
Nánari upplýsingar á námskrá.is