Atvinnuþátttaka
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Áhersla verður á að kynna sér ýmis störf og mismunandi vinnustaði. Námið felur í sér að nemendur þjálfist í að beita mismunandi aðferðum og verklagi. Starfsnám getur farið fram í skólanum og úti á vinnustöðum. Með því að tengja námið við vinnustaði öðlast nemendur oft aðra sýn á námið í skólanum og tilgangur námsins verður oft skýrari.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- fjölbreyttum vinnustöðum
- að þjálfun og undirbúningur er mikilvægur áður en farið er út á vettvang
- mikilvægi þess að fara út á vinnumarkaðinn að skóla loknum
- Þeim hættum sem geta verið í starfsumhverfinu
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- beita fjölbreyttu verklagi
- vinna eftir skipulagi
- mæta til vinnu á réttum tíma
- fylgja hreinlætisreglum á vinnustað
- fylgja samskiptareglum á vinnustað
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- taka þátt í atvinnulífinu
- vinna verkefni sjálfstætt eða eftir leiðsögn
- hafa trú á eigin færni og sjálfstraust til þess að takast á við ný verkefni
- biðja um aðstoð ef þess þarf
- tilheyra starfsmannahópi
Nánari upplýsingar á námskrá.is