GRUN1AU05 - Grunnteikning 1

Almenn undirstaða

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur öðlist almenna undirstöðuþekkingu og þjálfun í teiknifræðum. Áfanginn skiptist í tvo megin efnisþætti. Í fyrra efnisþætti er fjallað um fallmyndun og þeim seinni ásmyndun og fríhendisteikningu. Í áfanganum er gert ráð fyrir að nemendur öðlist færni í meðferð og notkun mæli- og teikniáhalda, myndrænni vinnu með viðfangsefni starfsgreina, lestur teikninga og fái grunnþjálfun í gerð vinnuteikninga og þrívíðra rissteikninga. Gert er ráð fyrir að hluti verkefna í áfanganum verði unninn með þar til gerðum tölvuforritum. Áfanginn er undirbúningur fyrir áframhaldandi nám í teiknifræðum og lestri vinnuteikninga.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • upplýsingamiðlun með tæknilegum teikningum.
  • lestri og gerð einfaldra tæknilegra vinnuteikninga og gerð einfaldra þrívíðra teikninga.
  • fríhendisteikningu.
  • skipulagningu, áritun og frágangi einfaldra tæknilegra teikninga og því hvernig miðla má upplýsingum á skilvirkan hátt.
  • hornréttum fallmyndum ásamt sneiðmyndum af einföldum hlutum.
  • þeim tölvuforritum sem notuð eru við gerð tæknilegra teikninga.

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • skipuleggja vinnublað, árita með teikniskrift og ganga frá einföldum vinnuteikningum skv. reglum, stöðlum og venjum.
  • nota teikni- og mæliáhöld.
  • ganga frá teikningum með þar til gerðum tölvuforritum.
  • beita grunnverkfærum teiknifræða og sé þannig undirbúinn fyrir frekara nám greininni.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • teikna ásmyndir (fram-skámyndir með 0°-90°-45° áshalla, ofan-skámyndir með 60°-90°-30° áshalla og/eða samkvarða-myndir með 30°-90°-30° áshalla) af einföldum hlutum, skv. reglum, stöðlum og venjum, þannig að vinna megi eftir þeim. Þetta er metið með verkefnum og prófum.
  • teikna ásmyndir (fram-skámyndir, ofan-skámyndir og/eða samkvarða-myndir) fríhendis á auð vinnublöð af einföldum hlutum skv. reglum, stöðlum og venjum, þannig að vinna megi eftir þeim sem metið er með verkefnum og prófum.
  • skipuleggja vinnublað, málsetja, árita með teikniskrift og ganga frá ásmyndum skv. reglum, stöðlum og venjum, þannig að vinna megi eftir þeim. metið með verkefnum og prófum.
  • gera vinnuteikningar með hefðbundnum teikniáhöldum og tölvuforritum af einföldum hlutum með hornréttum fallmyndum og sneiðmyndum ásamt málsetningum í tilteknum mælikvarða, skv. reglum, stöðlum og venjum. metið með verkefnum og prófum.
Nánari upplýsingar á námskrá.is