MIG/MAG
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Engar
Nemendur læri MIG/MAG-suðu í ýmsum efnisþykktum. Þjálfuð er grunnfærni og þekking á ýmsum suðuaðferðum þannig að nemendur þekki mun á suðuaðferðum, notagildi þeirra, kostum og göllum.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- gastegundum og gasblöndum sem notaðar eru við suðu á stáli, áli og ryðfríu stáli.
- hlutverki hlífðargass og réttar stillingar.
- öllum hlutum suðubyssu og leiðara fyrir mig/mag.
- virkni suðutækja, drifbúnað og pólun.
- virkni viðnámsspólu í mig/mag-suðutækjum.
- brunahættu vegna straumleiðara.
- helstu hættum og varúðarráðstöfunum vegna geislunar, hita, reyks, ósonmyndunar og eldfimra efna.
- hlífðarfatnaði og hlífum við vinnu.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- meðhöndla búnað til suðu.
- sjóða saman hluti við ýmsar aðstæður.
- stilla suðutæki, þ.e. straum, vírhraða, spennu og viðnám.
- velja rétta spíssa.
- stilla gasflæði, velja gashulsu og skaut.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- stilla suðutækin, þ.e. straum, vírhraða, spennu og viðnám sem er metið með verkefnavinnu.
- setja rúlluvír í suðutækin og velja rétta spíssa sem er metið með verkefnavinnu og prófi.
- stilla gasflæði, velja gashulsu og skaut sem er metið með verkefnavinnu.
- sjóða í mismunandi suðustöðum sem er metið með verkefnavinnu.
- gegnumsjóða þunna stálplötu öðrum megin frá sem er metið með verkefnavinnu og prófi.
- meta algengustu suðugalla og greint orsakir þeirra sem er metið með verkefnavinnu og prófi.
Nánari upplýsingar á námskrá.is