Grunnnám málm- og bíliðna
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Nemendur geta meðhöndlað og beitt helstu vélum og verkfærum sem notuð eru við plötuvinnu. Áhersla er lögð á öryggismál og þá hættu sem stafað getur af tækjum og efnum sem notuð eru við vinnuna. Að námi loknu geta nemendur smíðað einfalda gripi eftir nákvæmum teikningum, bæði í vélum og með handverkfærum.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- helstu verkfærum, tækjum og vélum sem notuð eru við plötuvinnu og notkunarsviði þeirra.
- gildandi vinnuverndarákvæðum og þeim hlífðarbúnaði sem við á þegar unnið er með vélum og handverkfærum.
- mismunandi gerðum þunnplatna og flokkun þeirra eftir yfirborðshúð og áferð.
- tæringarvörnum, húðun og vinnsluaðferðum.
- áhrifum beyginga á stærð smíðisgripa úr málmplötum.
- þeim hættum sem fylgja vinnu við þunnplötur.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- beita þeim handverkfærum sem notuð eru í plötuvinnu.
- umgangast og nota þær vélar sem notaðar eru í plötuvinnu.
- varast þær hættur sem eru samfara vinnu við handverkfæri og vélar.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- velja efni eftir gefnum forsendum um gerð og þykkt.
- ákvarða efnisstærðir og þykktir með 0,1 mm nákvæmni.
- velja handverkfæri til vinnu einfaldra verka.
- klippa með hand- og vélklippum 0,5-1,25 mm þykkar málmplötur með 0,5 mm nákvæmni.
- velja beygjuklossa og stillt beygjuvélar m.t.t. efnisþykkta.
- beygja 0,5-1,25 mm þykkar málmplötur með 1 mm nákvæmni.
- ákvarða borstærðir fyrir hnoðun og útsnörun.
- snara úr fyrir hnoðum og hnoða með gegnheilum hnoðum, með undirsínkuðum og kúptum haus og draghnoðum.
- setja mismunandi smíðishluta saman með hnoðun, skrúfum og mótstöðusuðu (punktsuðu).
- varast þær hættur sem fylgja vinnu við handverkfæri og vélar sem notuð eru við plötuvinnu.
Nánari upplýsingar á námskrá.is