vélavinna
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: SMÍÐ2NH05
Aukin áhersla lögð á verkefni sem krefjast fjölbreyttrar notkunar verkstæðisvéla og sjálfstæðari vinnubragða. Aukin notkun teikninga og lestur þeirra, sem og notkun handbóka og taflna. Samhliða kennslunni fer fram fræðsla um slysahættu og öryggisþætti á vinnustað. Nemendur læra m.a. að finna réttar deilingar í deili, reikna einfaldan vinnslutíma og finna færslur samkvæmt töflum. Nemendur vinna eftir eigin verkáætlun við lausn verka. Þá skulu nemendur læra að meðhöndla og beita þeim mælitækjum sem algengust eru í málmiðnaði og geta unnið almenna spóntökuvinnu innan 0,02 mm málvika.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- öryggismálum og umhirðu spóntökuvéla
- áhrifum skurðverkfæra á afköst og áferð vinnslustykkja
- muninum á fín- og grófrennsli
- nákvæmni spóntökuvéla
- kröfum um samsetningar og yfirborðsáferð
- áhrifum af hita á efni og samsetningar
- áhrifum kælivökva við spóntöku
- gagnaöflun
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- vinna sjálfstætt á vélum eftir flóknum teikningum
- fræsa flókna hluti í skrúfstykki
- nota deilivélar
- leita að upplýsingum í handbókum og á netinu
- velja rennistál við hæfi
- velja fræsa/fræsiplatta við hæfi
- renna utan- og innanmál með 0,02 mm málvikum
- skila vandaðri vinnu (gæðavitund)
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- nýta þá þekkingu sem þeir hafa aflað sér í öðrum smíðaáföngum og beita við lausn verkefna
- gæta ávallt fyllsta öryggis þegar unnið er við spóntökuvélar
- gæta fulls öryggis við vinnu og meta aðstæður
- velja harðmálmsverkfæri ásamt færslu og skurðarhraða
- velja rétt verkfæri sem henta hverju sinni
- vinna eftir verkáætlun
- vinna sjálfstætt við lausn verkefna sem krefjast samþættingu verkþátta
- gera kostnaðaráætlun
- nýta töflubækur, viðgerðarhandbækur og almennar leiðbeiningar um það verk sem á að vinna
Nánari upplýsingar á námskrá.is