Vinnustaðanám Húsasmíði II
Einingafjöldi: 30
Þrep: 2
Forkröfur: Nemendur hafa lokið fyrri hluta vinnustaðanáms.
Í þessum áfanga fara nemendur í nám á vinnustað og getur nemandinn verið á mörgum vinnustöðum eftir verkefnum en vinnan er samræmd og skipulögð af skóla. Nemandinn á að vinna við neðangreinda verkþætti og skal öðlast þjálfun, leikni og hæfni í að vinna við verkþættina. Vægi verkþátta er eins og greint er hér fyrir neðan. Eftirfylgni með vinnu nemandans á tilgreindum verkþáttum á að vera með ferilbók sem skóli og nemandi fylla inn í eftir framvindu.
Heild vinnustaðanáms í vikum:
Steypt hús ‐ mótasmíði 7 vikur,
Vinnupallar 1 vika,
Klæðning útveggja 5 vikur,
Þök 5 vikur,
SAMTALS VIKUR: 18
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- eiginleikum og vali á réttu klæðningarefni, loftræstum útveggjaklæðningum
- eiginleikum og vali á réttri einangrun og frágangi á vindvörn eiginleikum efna sem notuð eru við smíðar á steypumótum
- álagskröfum steypumóta t.d. fjarlægðir milli stoða, stífinga og á milli dregara og stoða álagskröfum vegna styrkleika vinnupalla sbr. byggingareglugerð, t.d. um fjarlægðir milli stoða og dregara
- hæð á milli palla, styrk klæðningar, neglingu, staðsetningu á handriði og val á pallaefni vegna loftaundirsláttar
- vali á réttum festingum fyrir grindur og klæðningar, loftræstingu þaka sbr. byggingarreglugerð
- eiginleikum og styrkleikum sperruefnis
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- smíða vinnuborð, tröppur og búkka
- stilla upp kerfismótum, og handflekamótum leggja niður steypu í steypumót
- smíða hefðbundin steypumót t.d. sökkulmót, botnplötumót, veggjamót , loftamót og stigamót
- smíða timburvinnupalla, stilla upp vinnupöllum, ganga frá þakgluggum og smíða þakkanta
- ganga frá lektum og klæða útveggi
- byggja upp loftræstingu fyrir klædda útveggi, ganga frá sperrum í steypumót
- stóla sperru á steypta plötu
- timburklæða þök, leggja þakpappa og þakjárn
- ganga frá rennuböndum, skotrennum, kjöljárni og flastningum
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- velja efni út frá styrkleikakröfum
- meta burðarhæfni grunna m.a. vegna smíði steypumóta
- mæla út fyrir mannvirkjum (húsum) skv. mæliblaði eða með uppgefnum afsetningarpunktum og taka hæð (skv. hæðarkvótum)
Nánari upplýsingar á námskrá.is