Vinnustaðanám í húsasmíði I
Einingafjöldi: 30
Þrep: 2
Í áfanganum fara nemendur í nám á vinnustað og getur nemandinn verið á mörgum vinnustöðum eftir verkefnum en vinnan er samræmd og skipulögð af skóla. Nemandinn á að vinna við neðangreinda verkþætti og skal öðlast þjálfun, leikni og hæfni í að vinna við þá. Vægi verkþátta er eins og greint er hér fyrir neðan. Eftirfylgni með vinnu nemandans á tilgreindum verkþáttum á að vera með ferilbók sem skóli og nemandi fylla inn í eftir framvindu.
Verkþættir vinnustaðanáms í vikum:
Timburhús 2 vikur,
Gluggar og útihurðir 2 vikur,
Viðhald og endurbætur húsa 5 vikur,
Sólpallar og skjólveggir 2 vikur,
Veggir og klæðningar innanhúss 6 vikur,
Innréttingar og innihurðir 1 vika,
SAMTALS VIKUR: 18
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- mismunandi útfærslum á undirstöðum timburhúsa.
- eiginleikum og vali á réttu yfirborðsefni, t.d. fúavarnarefni
- eiginleikum og vali á réttum festingum og þéttiefni vegna ísetningar glugga og útihurða, lögum og reglugerðum sem fjalla um gömul hús
- helstu byggingastílum og friðun gamalla húsa, greiningu steypuskemmda og orsökum þeirra, útfærslum á undirstöðum fyrir sólpalla
- eiginleikum og vali á réttu efni í sólpalla og skjólgirðingar
- eiginleikum og vali á réttu efni sem notað er í innveggi og klæðningar, kröfum um innveggi og klæðningar sbr. byggingareglugerð
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- ganga frá vatnsbrettum, áfellum og listum vegna smíði timburhúsa ganga frá undirstöðum fyrir timburhús
- ganga frá gluggum í steypumót
- sjá um ísetningu glugga og útihurðir eftir uppsteypu húsa
- taka úr fyrir skrám, stafjárni og staðsett lamir vegna útihurða, glerja glugga og þekkja mismunandi glerjunaraðferðir
- skipta um eða gera við fúna glugga og útihurðir
- smíða sólpalla
- setja upp skjólveggi
- setja upp hleðslugrindur
- setja upp og rétta af veggjagrindur, t.d. staðsetja stoðir og glugga‐ og dyragöt, setja upp hljóðeinangrandi‐ og eldveggi
- setja upp veggjagrind og rétta af fyrir útveggi, setja upp og rétta af loftagrind (rafmagnsgrind)
- smíða timburgólf og klæða þau, leggja fljótandi og gegnheilt parket, slípa og lakka timburgólf
- setja saman og setja upp innréttingar
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- gera lekaleit og nota réttar aðferðir við þéttingu vegna leka, sjá um viðhald og endurbætur innanhúss
- fara að kröfum, reglum og stöðlum um styrkleika í burðarvirki timburhúsa, reisa burðarvirki, klæða veggi og þök timburhúsa
- nota yfirborðsefni
- beita réttum aðferðum við þéttingar glugga og útihurða, greina fúaskemmdir í húshlutum og meta umfang þeirra
- endurbyggja og breyta burðarvirki veggja og þaka í timburhúsum, endurglerja gamla glugga
- skipta um og gera við utanhússklæðningar
- framkvæma steypuviðgerðir og þekkja eiginleika þeirra
- pússa upp glugga og útihurðir og yfirborðsmeðhöndla á ný
- endureinangra húshluti
- ganga frá einangrun útveggja, milliveggja og lofta, sbr. byggingareglugerð
- ganga frá loftræstingu þaka, vindvörn og rakavarnarlagi, sbr. byggingareglugerð, stilla af, festa og þétta innihurðaramma
Nánari upplýsingar á námskrá.is