Stafsþjálfun á vinnustað I
Einingafjöldi: 30
Þrep: 3
Forkröfur: Nám í húsasmíði ásamt vinnustaðanámi
Í þessum áfanga fara nemendur í starfsþjálfun á vinnustað og er nemendinn á einum eða fleiri vinnustöðum í þessari starfsþjálfun. Nemandinn á að vinna við sem fjölbreyttasta verkþætti á vinnustað og skal öðlast þjálfun, leikni og hæfni í að vinna við verkþættina. Eftirfylgni með vinnu nemandans á tilgreindum verkþáttum á að vera með ferilbók sem meistari og nemandi fylla inn í eftir framvindu. Skólinn hefur eftirlit og umsjón með starfsþjálfun nemanda hverju sinni og staðfestir starfsþjálfun nemanda með undirskrift sinni í ferilbók nemanda. Lengd starfsþjálfunar er 18 vikur.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- velja sér námsbraut innan bygginga‐ og mannvirkjagreina á grundvelli þekkingar
- takast á við frekara nám innan bygginga‐ og mannvirkjagreina hvort heldur er í skóla eða sem nemi á vinnustað
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- lesa og greina einfaldar teikningar, verklýsingar og önnur verkgögn beita algengustu áhöldum og tækjum innan atvinnugreinarinnar
- fara vel með tæki og tól og nýta vel efni sem unnið er með
- gæta öryggis síns í og á vinnustað
- ganga fagmannlega frá í kennslustofu og á vinnustað fara eftir leiðbeiningum kennara og verkstjóra
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- sinna störfum og starfsumhverfi innan bygginga‐ og mannvirkjaiðnaðar
- kunna skil á ýmsum námsleiðum að loknu námi
- nýta algengustu áhöld og tæki innan atvinnugreinarinnar
- þekkja skil á helstu efnum sem unnið er með í bygginga‐ og mannvirkjaiðnaði
- fylgja öryggisráðstöfunum á vinnustað og mikilvægi heilsuverndar mikilvægi umhverfisverndar í atvinnugreininni
- skilja mikilvægi góðra samskipta og samvinnu á vinnustað
- sinna borgaralegum réttindum sínum og skyldum
- kunna skil á skipulagi íslensks samfélags og vinnumarkaðar
Nánari upplýsingar á námskrá.is