Grunnáfangi
Einingafjöldi: 20
Þrep: 1
Forkröfur: Lokið skal vera áföngum á 1. ári í grunnámi í rafiðna
Nemanda eru kynntar allar öryggsikröfur á vinnustað og mikilvægt er að hann skilji mikilvægi þeirra. Honum skal gerð grein fyrir þeim hættum sem geta verið samfara vinnu við rafmagn. Nemandi skal læra meðhöndlun og beitingu allra handverkfæri sem nota þarf við rafvirkjastörf. Mikilvægt er vinnubrögð hans séu fagmannleg frá upphafi. Hann á að geta unnið sem aðstoðarmaður rafvirkja og geta framkvæmt einfaldar tengingar. Gott er leyfa nemandanum að byrja á einföldum verkþáttum og bæta svo í eftir því sem hæfni hans eykst
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- örryggiskröfum og geti beitt öryggisbúnaði á vinnustað
- örryggiskröfum og geta beitt öryggisbúnaði á vinnustað
- frágangi rafmangstenginga með fagmannlegum hætti.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- meðhöndla og beita handverkfærum sem þarf að nota við rafvirkjastörf
- rafmangslögnun og –tengingum á fagmannlegan hátt
- vinna í hópi að sameiginlegu markmiði
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- nemandi geti lagt rafmagnsrör og komið fyrir rafmagnsdósum í nýbyggingu eftir raflagnateikningu
- hann geti dregið í rörin samkvæmt hlutverki víra og ákveðið fjölda víra í hverju röri
- nemandi geti tengt allann endabúnað s.s. rofa, ljós og tengla
- nemandi geti lagt áfelda kapallögn á réttan og snyrtilegan hátt
- nemandi geti lagt og gengið frá raflögnum í mismunandi byggingarefni s.s. steypu, timbur, vikur og gips
- getið unnið eftir fyrirmælum
Nánari upplýsingar á námskrá.is