Starfsþjálfun málm- og véltæknigreina
Einingafjöldi: 20
Þrep: 1
Áfanginn felur í sér starfsþjálfun á námssamningi þar sem nemandi beitir þeirri þekkingu, leikni og hæfni sem hann hefur aflað sér í náminu til þessa. Kröfur í starfsþjálfun aukast stig af stigi. Að loknu námi í skóla, starfsþjálfun og fullnægjandi útfylltri ferilbók er neminn tilbúinn í sveinspróf.
Á 1. þrepi er aðstoð mikil og gert ráð fyrir að nemandi vinni undir leiðbeinandi fyrirmælum meistara. Sjálfstæði nemanda eykst síðan eftir því sem á námið líður. Á 1. þrepi kynnist nemandi vinnustað og verksviðum fagsins, helstu öryggisatriðum og þeim efnum og áhöldum sem tilheyra faginu. Í lok áfangans er ætlast til að hann hafi færni til að hefja nám á 2. þrepi starfsþjálfunar.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- vinnustaðamenningu og verksviðum fagsins.
- helstu öryggis- og umhverfisatriðum sem snerta fagið.
- eiginleikum þeirra efna sem hann vinnur með innan fagsins.
- áhöldum og tækjum sem tilheyra faginu.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- taka tilsögn og fylgja hönnunargögnum.
- vinna í samræmi við gildi og stefnu vinnustaðar.
- vinna með hliðsjón af viðurkenndu verklagi.
- vinna í samræmi við viðurkenndar öryggisreglur og öryggisbúnað.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- vinna undir stjórn og sinna vel þeim verkefnum sem honum eru falin.
- kynnast notkun og viðhaldi á áhöldum og tækjum.
- beita sér rétt við vinnu.
- sýna þjónustulund og góða umgengni og umhirðu á vinnustað.
Nánari upplýsingar á námskrá.is