Starfsþjálfun málm- og véltæknigreina
Einingafjöldi: 20
Þrep: 2
Forkröfur: STAÞ1MS20
Áfanginn felur í sér starfsþjálfun á námssamningi þar sem nemandi beitir þeirri þekkingu, leikni og hæfni sem hann hefur aflað sér í náminu. Kröfur í starfsþjálfun aukast stig af stigi. Að loknu námi í skóla, starfsþjálfun og fullnægjandi útfylltri ferilbók er neminn tilbúinn í sveinspróf.
Á 2. þrepi er dregið úr aðstoð en tilsögn meistara ætíð tiltæk. Sjálfstæði nemandans eykst síðan eftir því sem á námið líður. Á 2. þrepi þekkir nemandi vel til vinnustaðamenningar og verksviða fagsins. Hann öðlast aukna færni í að beita áhöldum og nota efni sem tilheyra faginu. Hann getur unnið með viðurkenndu verklagi samkvæmt öryggisreglum og fylgt hönnunargögnum með tilsögn.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- helstu verksviðum fagsins.
- helstu öryggis- og umhverfisatriðum sem snerta fagið.
- helstu gæðakröfum sem snerta fagið.
- eiginleikum og möguleikum þeirra efna sem hann vinnur með innan fagsins.
- áhöldum og tækjum sem tilheyra faginu.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- fylgja hönnunargögnum með tilsögn.
- vinna í samræmi við gildi og stefnu vinnustaðarins.
- vinna með hliðsjón af gæðakröfum og viðurkenndu verklagi.
- vinna í samræmi við viðurkenndar öryggisreglur og öryggisbúnað.
- beita fjölbreyttum aðferðum til að ná markmiðum í starfi.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- beita sjálfstæði í vinnubrögðum.
- horfa á verk sitt gagnrýnum augum og bæta verklag með aðstoð meistara.
- nota og sinna viðhaldi á áhöldum og tækjum.
- beita sér rétt við vinnu.
- sýna þjónustulund og góða umgengni og umhirðu á vinnustað.
Nánari upplýsingar á námskrá.is