iðntölvur, rökhugtök, stafræn tækni
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: RAMV2MJ05
Nemandinn öðlast undirstöðuþekkingu í gerð rökrása og fær þjálfun í hönnun og greiningu á einföldum rökrásum, tengingum og forritun þeirra. Hann þjálfast í að setja saman og tengja rökrásahlið fyrir ákveðna virkni, skrifa formúlu samsettrar rásar og prófa virkni hennar. Nemandinn öðlast þekkingu og skilning á hvernig hægt er að byggja upp rökrásavirkni í iðntölvum og forritanlegum rökrásum. Kynnist hugtökunum forrit (program), stigarit (ladder) og rim (network) og fær þjálfun í að setja upp einfalda stýringu í tölvunni og þjálfun í að tengja búnað við inn- og útganga.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- helstu hugtökum stafrænnar tækni
- grunnrökrásahliðum, or, and og not
- rökrásahliðum nor og nand
- hvernig hægt er að nota nor og/eða nand hlið til að fá fram grunnvirknina, or, and og not
- mismunandi talnakerfum, einkum tvítölukerfi, oktan og hexadecimal
- samrásum (ic-circuit) með rökrásahliðum (c-mos eða ttl)
- grunnskipunum í c og c++ forritun
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- lesa virkni einfaldra rökrása
- hanna rökrás út frá skilyrtri virkni
- bera saman mismunandi talnakerfi, einkum tvítölukerfi, oktan og hexadecimal við tugakerfið
- tengja og prófa samrásir með rökrásahliðum
- teikna stigarit eftir: a) formúlu, b) segulliðarás c) textalýsingu
- skrifa formúlur í rökrásavirkni og vinna í hermisforritum
- nota sannleikstöflur og bólskar jöfnur til að skilgreina virkni rökrása
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- útskýra grunnrökrásahlið og rökrásahlið með rofahliðstæðunni og setja upp sannleikatöflu þeirra og bólskar (boolean) formúlur
- setja upp einfaldar stýringar í iðntölvum og örgjörvarásum
- tengja búnað við inn- og útganga iðntölvu
- forrita örtölvukerfi sem stýra einföldum ferlum
- forrita einfaldar örgjörvarásir
Nánari upplýsingar á námskrá.is