RAFM2BV05 - Rafmagnsfræði og mælingar

Bifvélavirkjar

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Grunnnám bíliðngreina.
Farið er í helstu hugtök og lögmál rafmagnsfræði jafnstraums, hegðum straums og spennu í rafrásum og virkni helstu íhluta í rafbúnaði og rafeindatækni. Lögð er áhersla á að nemendur geti nýtt þekkingu sína til útskýringa á virkni einfaldra rafrása og bilanagreininga á þeim. Farið er yfir virkni og notkun mælitækja og mat á niðurstöðum mælinga.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • helstu hugtökum, s.s. spennu, straumi og viðnámi.
  • helstu lögmálum, s.s. ohms-, kirkhooffs- og afllögmálum.
  • hegðun straums og spennu í rafrásum.
  • virkni helstu íhluta rafrása.
  • virkni helstu mælitækja.
  • notkun helstu mælitækja.
  • niðurstöðum mælinga.

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • framkvæma útreikninga á rafrásum.
  • Útskýra virkni einfaldra rafrása.
  • nota viðeigandi mælitæki.
  • meta niðurstöður mælinga.
  • bilanagreina einfaldar rafrásir.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • Útskýra virkni einfaldra rafrása.
  • reikna út spennu, straum og viðnám í rafrásum.
  • framkvæma bilanagreiningu í einföldum rafrásum.
  • takast á við frekari menntun í raf- og rafeindabúnaði.
Nánari upplýsingar á námskrá.is