GÍKÚ2BV05 - Gírkassar og kúplingar

Bifvélavirkjar

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Grunnnám bíliðngreina.
Farið er yfir hlutverk gírkassa, uppbyggingu og virkni þeirra. Fjallað um mismunandi gerðir gírkassa, hand- og sjálfskiptra, og íhlutir þeirra skoðaðir og skýrðir. Farið er yfir hlutverk kúplinga, uppbyggingu og virkni þeirra. Unnin eru verkefni í einföldum bilanagreiningu á gírkössum og kúplingum og viðgerðum á þeim. Áhersla er á notkun tækniupplýsinga, verkfæra, mælitækja og öruggra vinnuaðferða.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • hlutverki gírkassa og kúplinga.
  • uppbyggingu og virkni gírkassa og kúplinga.
  • mikilvægi notkunar tækniupplýsinga.
  • notkun á mismunandi verkfærum og mælitækjum.
  • mikilvægi réttra og öruggra vinnubragða.

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • Útskýra hlutverk og virkni mismunandi gírkassa og kúplinga.
  • skipta um kúplingu og þjónusta gírkassa.
  • framkvæma einfaldar bilanagreiningar.
  • nota viðgeigandi verkfæri og mælitæki og meta niðurstöður mælinga.
  • nota viðeigandi tækniupplýsingar.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • skipta um kúplingar.
  • Þjónusta og gera við gírkassa.
  • framkvæma einfaldar bilanagreiningar.
  • takast á við frekari menntun í bilanagreiningum og viðgerðum á gírkössum.
Nánari upplýsingar á námskrá.is