Bifvélavirkjar
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Grunnnám bíliðngreina.
Fjallað er um uppbyggingu og virkni hemlabúnaðar bifreiða og þá krafta sem þar verka. Nemendur öðlast skilning á virkni íhluta og kerfinu í heild ásamt þeim þáttum hafa áhrif á hemlagetu. Unnin eru verkefni í ástandsskoðun íhluta og kerfis, hemlamælingu og viðgerðum. Farið er yfir notkun verkfæra, mælitækja og tækniupplýsinga (skoðunarhandbókar) með áherslu á öryggi.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- uppbygginu og virkni hemlabúnaðar.
- kröfum sem gerðar eru til hemlakerfa.
- virkni hjálparbúnaðar í hemlakerfum.
- Öryggis- og vinnureglum þegar unnið er að þjónustu á hemlabúnaði bifreiða.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Útskýra virkni og íhluti hemlabúnaðar.
- Ástandsskoða og mæla hemlabúnað.
- nýta upplýsingar úr viðgerðabókum og skoðunarhandbók.
- fara eftir öryggs- og vinnureglum.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- lýsa virkni mismunandi hemlabúnaðar bifreiða.
- Ástandsskoða, mæla og sinna viðhaldi á hemlabúnaði.
- nota tækniupplýsingar frá framleiðanda og skoðunarhandbók til að tryggja rétta vinnuaðferð og virkni við þjónustu hemlabúnaðar.
Nánari upplýsingar á námskrá.is