RATL2BV05 - Rafmagnsteikningar og -leiðslur

Bifvélavirkjar

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Rafmagnsfræði og mælingar.
Farið er í uppbyggingu og virkni rafmagnsteikninga og merkingu helstu tákna samkvæmt DIN staðli. Gerðar eru æfingar í notkun rafmagnsteikninga við bilanagreiningu og viðgerðir á rafkerfum. Einföld rafkerfi fyrir aukabúnað eru hönnuð og teiknuð. Áhersla er á skilning rafmagnsteikninga og notkun við bilanagreiningu.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • virkni rafmagnsteikninga.
  • helstu táknum rafmagnsteikninga samkvæmt din staðli.
  • Útreikningum við hönnun einfaldra rafrása.

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • lesa og skilja rafmagnsteikningar.
  • nýta rafmagnsteikningar við bilanagreiningu.
  • hanna og teikna einfalt rafkerfi.
  • framkvæma viðgerðir á rafkerfum.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • bilanagreina og lagfæra rafkerfi og -búnað.
  • hanna og smíða einföld rafkerfi fyrir aukabúnað.
Nánari upplýsingar á námskrá.is