STBR3BV05 - Stjórnbúnaður brunahreyfla

Bifvélavirkjar

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: Uppbygging og virkni brunahreyfla, Rafmagn, ýmiss búnaður.
Farið er yfir uppbyggingu og virkni stjórnbúnaðar brunahreyfla, eins og tímafærslubúnaðar (ventlatíma), kveikikerfis og eldsneytiskerfis. Farið yfir virkni skynjara og hreyfiliða í stjórnkerfum hreyfla. Farið yfir virkni stjórnkorts í vélartölvu. Unnin eru verkefni í mælingum á merkjum skynjara og hreyfiliða og mati á niðurstöðum mælinga. Áhersla á notkun mælitækja og tækniupplýsinga.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • virkni tímafærslubúnaðar.
  • virkni kveikikerfa og eldsneytiskerfa.
  • virkni stjórnbúnaðar ventla.
  • uppbyggingu og virkni stjórnkorts í stjórntölvu hreyfla.
  • virkni skynjara og hreyfiliða í stjórnbúnaði hreyfla.

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • mæla skynjara og hreyfiliði.
  • nota viðeigandi mæli- og greiningatæki.
  • nota viðeigandi tækniupplýsingar.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • mæla virkni skynjara og hreyfiliða í stjórnbúnaði hreyfla.
  • Útskýra uppbyggingu og virkni stjórnbúnaðar hreyfla.
  • nota viðeigandi mæli- og greiningartæki, tækniupplýsingar og túlka niðurstöður mælinga.
Nánari upplýsingar á námskrá.is