Bifvélavirkjar
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: Uppbygging og virkni brunahreyfla
Nemandi öðlast leikni í að beita þekkingu sinni á grunnvirkni hreyfla og viðgerðarupplýsingum framleiðanda. Unnið við heddpakkningar. Unnið við stillingar eða skipti tímafærslubúnaðar.
Ventlar stilltir. Mælingar á virkni kælikerfis, smurkerfis. Skipt um íhluti kælikerfis.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- virkni hreyfla og hvernig það lýsir sér ef virkni er ekki eðlileg.
- tímafærslubúnaði.
- eldsneytis-, kveiki-, kæli- og smurkerfum hreyfla.
- hvernig staðið er að skiptum á íhlutum í nefndum búnaði.
- notkun herslumæla, þjöppu og þrýstimæla.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- nota viðgerðarupplýsingar framleiðanda við athuganir og viðgerðir á hreyflum.
- nota verkfæri til þrýstiprófunar á elds-neytis-, kæli- og smurkerfum.
- framkvæma virknimælingar á kælikerfi.
- skipta um tímafærslubúnað.
- nota herslumæla og gráðuskífu.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skipta um heddpakkningu á grundvelli upplýsinga framleiðanda og nota við það herslumæli og gráðuskífu.
- skipta um tímafærslubúnað á grundvelli upplýsinga framleiðanda.
- framkvæma þjöppumælingu, strokklekamælingu, stilla kveikju og eða innsprautunartíma eftir upplýsingum framleiðanda.
- skipta um íhluti kveikikerfis samkvæmt upplýsingum framleiðanda.
- stilla ventla samkvæmt upplýsingum framleiðanda.
- framkvæma þrýstimælingar smurkerfis og greina leka.
- framkvæma þrýsti- og virknimælingar á kælikerfi.
- skipta um íhluti kælikerfis.
- lofttæma kælikerfi.
Nánari upplýsingar á námskrá.is