RAÝR3BV05 - Rafmagn – ýmiss rafbúnaður

Bifvélavirkjar

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: Rafmagnsfræði og mælingar, Rafmagnsteikningar og -leiðslur.
Fjallað er um uppbyggingu og virkni á ýmsum rafbúnaði, svo sem ljósa-, öryggis- og þægindabúnaði. Framkvæmdar eru bilanagreiningar og viðgerðir á búnaðinum. Áhersla er lögð á notkun mælitækja og tækniupplýsinga, og mat á niðurstöðum mælinga.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • virkni mismunandi ljósa-, öryggis- og þægindabúnaðar.
  • virkni helstu íhluta.
  • helstu aðferðum og mælitækjum við bilanagreiningu.
  • helstu aðferðum og tækjum við viðgerðir og stillingar á íhlutum.

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • Útskýra virkni mismunandi ljósa-, öryggis- og þægindabúnaðar.
  • framkvæma bilanagreiningu/viðgerðir á mismunandi ljósa-, öryggis- og þægindabúnaði.
  • nota viðeigandi mælitæki og tækniupplýsingar.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • bilanagreina og lagfæra helstu íhluti/þætti ljósa- , öryggis- og þægindabúnaðar.
  • Útskýra virkni ljósa- , öryggis- og þægindabúnaðar, og helstu orsakir bilana.
Nánari upplýsingar á námskrá.is