MILO3BV05 - Miðstöð og loftfrískunarkerfi

Bifvélavirkjar

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: Rafmagnsfræði og mælingar, Rafmagn – bilanagreining rafbúnaðar.
Fjallað er um uppbyggingu, virkni og þróun miðstöðvar og loftfrískunarkerfa bifreiða. Fjallað um umhverfisáhrif kælimiðla og mikilvægi þess að þeir sleppi ekki út í andrúmsloftið. Nemendur vinna verkefni í bilanagreiningu og þjónustu miðstöðvar og loftfrískunarkerfa, með áherslu á rétta notkun verkfæra, tækja og tækniupplýsinga. Sérstök áhersla er lög á notkun öryggis- og hlífðarbúnaðar.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • Öryggisþáttum sem gilda þegar unnið er við miðstöð og loftfrískunarkerfi.
  • uppbyggingu og virkni íhluta miðstöðvar og loftfrískunarkerfa.
  • reglum sem gilda um meðferð kælimiðla.
  • skaðsemi kælimiðla á umhverfið.

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • nota viðeigandi verkfæri, tæki og tækniupplýsingar, við þjónustu og viðgerðir miðstöðvar og loftfrískunarkerfa.
  • meðhöndla kælimiðla.
  • framkvæma ástandsskoðanir og þjónustu á miðstöð og loftfrískunarkerfum.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • sinna viðhaldi, bilanagreiningu og viðgerðum á miðstöð og loftfrískunarkerfum.
  • meðhöndla kælimiðla og frostlög á viðeigandi hátt.
Nánari upplýsingar á námskrá.is