BIBR4BV05 - Bilanagreining brunahreyfla

Bifvélavirkjar

Einingafjöldi: 5
Þrep: 4
Forkröfur: Rafmagnsfræði og mælingar, Uppbygging og virkni brunahreyfla, Stjórnbúnaður brunahreyfla, Vélarskoðun og viðgerðir brunahreyfla.
Fjallað er um mismunandi gerðir bilana í hreyflum. Farið er yfir skipulag og framkvæmd bilanagreininga. Unnin eru verkefni í skipulagi og framkvæmd bilanagreininga á hreyflum. Áhersla er á nákvæmt skipulag, notkun mælitækja, mat á niðurstöðum mælinga og notkun tækniupplýsinga.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • mikilvægi skiplags við bilanagreiningar.
  • gerð skipulags fyrir bilanagreiningu.
  • notkun mælitækja við bilanagreiningar.
  • niðurstöðum mælinga á hreyflum, raf- og vélbúnaði.

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • Útskýra mikilvægi skipulags bilanagreininga.
  • framkvæma bilanagreiningar á hreyflum, raf- og vélbúnaði á skipulagðan hátt.
  • nota viðeigandi mælitæki og tækniupplýsingar.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • framkvæma bilanagreiningar á hreyflum, raf- og vélbúnaði á skipulagðan hátt.
  • framkvæma öruggar og hagkvæmar viðgerðir á hreyflum, raf- og vélbúnaði.
Nánari upplýsingar á námskrá.is