STBI3BI30 - Starfsnám - bíliðngreinar

Bíliðngreinar

Einingafjöldi: 30
Þrep: 3
Nám á vinnustað er skilgreindur hluti af námi í bíliðngreinum. Starfsnámi er ætlað að þjálfa frekar hæfni nemenda á þeim sviðum sem nám þeirra á brautinni nær til. Á vinnustað fá þeir tækifæri til að takast á við raunveruleg verkefni við þær aðstæður sem fyrir hendi eru hverju sinni. Nemendur kynnast af eigin raun þeirri menningu sem fyrir hendi er í íslenskum fyrirtækjum og eru beinir þátttakendur í henni. Gert er ráð fyrir að hverjum nema fylgi ferilbók þar sem grein er gerð fyrir þjálfun hans. Þeir verkþættir sem nemandi framkvæmir eru tíundaðir, mat lagt á framgöngu hans, verktækni, vinnuhraða og hæfni í viðkomandi iðngrein. Bera nemandi og atvinnurekandi eða fulltrúi hans sameiginlega ábyrgð á skráningu í ferilbók.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • sjá ferilbók

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • sjá ferilbók

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • sjá ferilbók
Nánari upplýsingar á námskrá.is