hagnýt handritsgerð
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Markmið áfangans er að kynna fyrir nemendum mismunandi uppbyggingu kvikmyndahandrita og gerð þeirra með hjálp sérhæfðra forrita. Farið verður yfir frumsamin handrit, helstu atriði í uppbyggingu handrita, tekin dæmi um hvernig bækur hafa verið umskrifaðar í kvikmyndahandrit ásamt handrit að heimildarmyndum. Megináhersla á dramatíska uppbyggingu sögu sem sögð er með hjálp kvikmyndarinnar.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- helstu verklagsreglum við ritun stuttmyndahandrita, frá hugmynd til fullbúins handrits
- grunnhugtökum við gerð handrita og ritreglum sem nýtast við gerð þeirra
- nokkrum aðferðum við að byggja upp myndræna dramatíska frásögn í kvikmyndahandriti
- helstu verklagsreglum við gerð kostnaðaráætlunar fyrir kvikmynd
- mismunandi tegundum handrita eftir eðli og gerð kvikmyndaverksins, s.s. handrit að stuttmynd, heimildarmynd, auglýsingu og fréttaskýringu
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- rita helstu tegundir nytjatexta fyrir einfalt kvikmyndahandrit þar sem framsetning er skýr og skipulögð
- greina meginatriði í uppbyggingu hefðbundinna kvikmyndahandrita
- nýta algeng hugtök og tákn í uppbyggingu myndverks til að bæta eigin hæfni við ritun kvikmyndahandrita
- gera handrit fyrir stutt dagskrárverk ásamt lauslegri kostnaðaráætlun
- skrifa einfalt handrit í sérhæfðu handritsforriti
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- endursegja hefðbundinn texta eða óritaða sögu yfir í einfalt kvikmyndahandrit
- vinna með ólíka uppbyggingu kvikmyndahandrita eftir eðli þeirra og tegund
- gera einfalt kvikmyndahandrit ásamt fylgiskjölum fyrir framleiðanda
- túlka og meta atburðarás og persónur í frásögn í kvikmyndahandriti
- beita einföldum blæbrigðum í uppbyggingu kvikmyndahandrits til að forðast einhæfni og endurtekningar
Nánari upplýsingar á námskrá.is