Saga og sjónarhorn
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: FÉLV2IF05
Í áfanganum er farið yfir sögu og þróun greinarinnar. Undirgreinar hennar kynntar. Fjallað er um helstu frumkvöðla og hugmyndir þeirra. Þrjú meginsjónarhorn félagsfræðinnar (samvirkni-, átaka- og samskiptasjónarhornið) eru kynnt ítarlega. Einnig er fjallað um ný sjónarmið í félagsfræðinni.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- sögu félagsfræðinnar og þróun.
- hverjir teljast til frumkvöðla greinarinnar.
- samvirkni-, átaka- og samskiptasjónarhorninu í félagsfræði.
- sjónarmiðum sem komið hafa fram í seinni tíð.
- undirgreinum félagsfræðinnar.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- beita meginsjónarhornunum þremur á samfélagsleg málefni.
- geta notað helstu hugtök og hugmyndir frumkvöðla greinarinnar í ræðu og riti.
- geta notað helstu hugtök og hugmyndir meginsjónarhorna félagsfræðinnar í ræðu og riti.
- framkvæma einfalda rannsókn.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- afla sér heimilda um viðfangsefni áfangans, greina þær og miðla.
- útskýra viðfangsefni áfangans með hliðsjón af samfélaginu.
- taka rökstudda og sjálfstæða afstöðu til efnisþátta áfangans.
- fjalla um sögu og þróun greinarinnar út frá samfélagsbreytingum.
Nánari upplýsingar á námskrá.is