evrópski tungumálaramminn, stig a2, viðbót
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Spænska 2
Nemendur öðlast leikni í að segja frá liðnum atburðum í
þátíð og að endursegja lengri texta. Þeir lesa létta bókmennta- og nytjatexta og vinna verkefni, þýðingar og endursagnir úr þeim. Mikil áhersla er lögð á tileinkun orðaforða með notkun orðabóka og tölvu (Google translate) og talæfingar. Samskiptahæfni nemenda er þjálfuð markvisst. Nemendur eru hvattir til að hafa samband við kennara á spænsku, s.s. skilaboð í tölvupósti. Í auknum mæli eru unnin sjálfstæð skapandi verkefni í tölvunni þar sem við hvert verkefni er lögð áhersla á eitt sérstakt atriði í málfræði og málnotkun, s.s. þúun-þérun, rétta þátíð, tilvísunarorð- spurnarorð.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- framburðarreglum
- orðaforða í kennslubók og nytjatextum
- notkun tíða og greinarmun á atburðum og ástandi
- ákveðinni og ófullkominni þátíð, núliðinni tíð, þáliðinni tíð og framtíð
- fornöfnum í öllum aukaföllum
- algengustu orðasamböndum
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- taka þátt í undirbúnu samtali um kunnugleg málefni, áhugamál sín, fjölskyldu, nágranna og vini, ferðalög og vinnu
- ná megininnihaldi í samtali þriggja til fjögurra einstaklinga
- endursegja og að tjá sig um skoðanir sínar
- útskýra algenga og þekkta hluti
- segja frá atburðum og innihaldi léttra og einfaldra texta
- vinna með málfræði, stíl og orðaforða
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- bjarga sér á spænskumælandi svæði, til dæmis með því að:
- spyrja og segja til vegar,
- panta mat og drykk,
- bóka hótelherbergi,
- reikna og skila upphæð sem þarf að borga,
- hafa samband við lækni eða lögreglu í neyðartilfelli
Nánari upplýsingar á námskrá.is