Almenn lífsleikni og nýnemafræðsla
Einingafjöldi: 3
Þrep: 1
Áfanginn er ætlaður öllum nýnemum og er ætlast til að nemendur taki áfangann á fyrstu önn. Í áfanganum læra nemendur á nýja skólann, kynnast skólaumhverfinu, því námi sem þar fer fram og þeim leiðum sem geta hjálpað til við nám. Farið er í gegnum ýmis atriði sem hjálpa nemendum að fóta sig í framhaldsskóla, svo sem námstækni, notkun á bókasafni og fleira. Einnig verður farið yfir efni sem tengist því að auka sjálfsmynd nemenda, samskipti, tjáningu, sorg og sorgarviðbrögð, réttindi og skyldur á vinnumarkaði.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- skólanum og umhverfi hans
- því námi og þeim námsmöguleikum sem í boði eru
- góðum vinnubrögðum, námstækni og mikilvægi markmiðssetninga
- helstu hugtökum sem tengjast sjálfsmynd og þekkingu og skilningi á eigin persónu
- því hvernig skal undirbúa og flytja munnleg erindi við mismunandi aðstæður
- því félagslífi sem í boði er
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- gera námsáætlun
- beita námstækni
- nýta sér það félagslíf sem í boði er
- tjá sig fyrir framan nemendahópinn
- rýna í eigin sjálfsmynd og meta eigin stöðu
- nýta sér góð vinnubrögð, góða námstækni og setja sér raunhæf markmið
- skoða námsframboð og námsleiðir og tengja áhugasvið við náms- og starfsval
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- velja sér leið gegnum framhaldsskólakerfið og búa til námsáætlun fyrir nám að loknum framhaldsskóla
- flytja mál sitt á sannfærandi og öruggan hátt
- vera meðvitaður um styrkleika sína
Nánari upplýsingar á námskrá.is