Ólífræn efnafræði
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: Ólífræn efnafræði á 2. þrepi
oxunar/afoxunarhvörf, oxunartölur, oxara og afoxara. Orku í efnahvörfum og varmabreytingar. Jafnvægislögmálið, og jafnvægi efnahvarfa. Lögmál Le Chateliers, leysni salta og leysnimargfeldi. Sýrur og basa, sýrufasta, sýru-/basahvörf , búffera, pH og títrun. Lögð verður áhersla á sjálfstæði í verklegum æfingum og vinnubrögðum almennt.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- oxun/afoxun og oxunartölun og hvernig er hægt að nýta þær
- inn og útvermum hvörfum, hvarfvarma og virkjunarorku hvarfa
- jafnvægislögmálinu og lögmáli le chateliers
- sýrum og bösum, ph hugtalinu, sýru –basa pörum, búfferlausnum, römmum og daufum sýrum
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- framkvæma verklegar æfingar og vinna úr niðurstöðum þeirra
- finna oxunartölur og jafnvægistilla með þeim
- reikna út orku í efnahvörfum
- finna jafnvægisfasta og hvarfakvóta
- finna leysni salta, leysnimargfeldi og nota lögmál le chateliers.
- finna sýrustig , rammra og daufra sýra og búfferlausna
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og bera ábyrgð á eigin námsframvindu
- sjá tengslin milli náttúrufræðigreina og geta yfirfært þekkingu og leikni á milli þeirra og tengja saman efnisþætti efnafræðinnar við lausn flókinna verkefna
- nýta þekkingu úr efnafræði til að taka ákvarðanir og geta myndað sér skoðun og taka þátt í rökræðum sem byggja upp þekkingu á efnafræði
Nánari upplýsingar á námskrá.is