bókmenntir fyrri alda
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: ÍSLE2BM05
Í þessum áfanga verður fjallað um bókmenntir og bókmenntasögu frá landnámi til 1880. Lesin verða kvæði og textar frá fornöld og miðöldum ásamt kvæðum og textum lærdóms- og upplýsingaraldar og rómantíkur. Haldið áfram að þjálfa nemendur í ritun, heimildavinnu og skapandi túlkun á efni. Nemendur lesa Íslendingasögu og/eða skáldsögu sem tengist tímabilinu.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- helstu verkum tímabilsins, bókmenntahugtökum og mismundandi tegundum bókmennta
- greina strauma og stefnur í bókmenntasögu tímabilsins
- ólíkum bragarháttum
- orðaforða sem nægir til að lesa helstu verk íslenskrar bókmenntasögu
- ritgerðasmíð og heimildavinnu
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- skilja og meta forna texta og geta tjáð sig í ræðu og riti um verk og höfunda tímabilsins
- lesa sér til gagns texta frá fyrri öldum
- draga saman upplýsingar um efnið og vinna úr því á viðurkenndan hátt
- flytja af öryggi vel uppbyggða kynningu á krefjandi efni
- túlka og endurskapa efni og texta
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- tjá rökstudda afstöðu og taka virkan þátt í málefnalegri umræðu
- sýna frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- draga saman aðalatriði og beita gagnrýninni hugsun við lestur og túlkun texta
- skrifa skýran og vel uppbyggðan texta
- beita málinu á viðeigandi hátt við mismunandi aðstæður
- sýna víðsýni og sköpunarhæfni í málflutningi sínum og umfjöllun
Nánari upplýsingar á námskrá.is