náms-og starfsfræðsla
Einingafjöldi: 1
Þrep: 2
Forkröfur: LÍFS1AL03
LÍFS1FL02
LÍFS2SV02
Nám í áfanganum felst fyrst og fremst í virkri þátttöku nemandans. Hann tekur saman náms- og starfsferilskrá og gerir grein fyrir framtíðaráformum sínum hvað varðar náms- og starfsval. Hann leitar upplýsinga um viðkomandi nám og / eða starf og kynnir fyrir samnemendum sínum. Nemandinn velur nám á framhaldsskóla- eða háskólastigi eða starfsvettvang til kynningar. Áhersla er lögð á sjálfstæð vinnubrögð við upplýsingaöflun og framsögn og framkomu við kynningu eigin verka fyrir samnemendum. Nemandanum gefst kostur á að taka áhugasviðskönnun sem kortleggur áhugasvið hans. Þá verður farið yfir tímaskipulag og vinnubrögð í námi. Loks er lögð áhersla á að bjóða sérskólum og skólum á háskólastigi að kynna námsframboð sitt.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- mikilvægi góðrar náms- og ferilskrár
- styrkleikum sínum og framtíðaráformum
- leiðum til upplýsingaöflunar í tengslum við náms- og starfsval
- miklvægi tímastjórnunar í námi og starfi
- grunnatriðum námstækni í háskólanámi
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- koma fram og kynna eigin náms- og starfsferilskrá
- koma fram og kynna nám og / eða störf að loknum framhaldsskóla
- afla upplýsinga um nám og störf að loknum framhaldsskóla
- gera tímaáætlun sem tekur mið af núverandi námi
- temja sér grunnatriði námstækni í háskólanámi
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- gera sér grein fyrir eigin styrkleikum og veikleikum
- kortleggja eigin framtíðaráform varðandi náms- og sarfsval
- gera sér grein fyrir áhugasviði sínu og möguleikum á náms- og srafsvali í samræmi við það
Nánari upplýsingar á námskrá.is