evrópski tungumálaramminn, grunnur, stig a2
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: ÞÝSK1TM05
Unnið er sem fyrr með málfærniþættina lesskilning, hlustun, ritun og tal. Áherslan er á áfram á nánasta umhverfi nemandans og þeir vinna með ýmis þemu tengdu því t.d. mat,
heimilið, tísku, listir og skólann. Í tengslum við þessi þemu er siðum og samskiptavenjum í þýskumælandi löndum fléttað inn í kennsluna. Nemendur tileinka sér ný málfræðiatriði og orðforði aukinn enn frekar.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum áfangans
- ólíkum textagerðum og geti greint mun á skrifuðu og töluðu máli
- meginatriðum þýskrar málfræði
- grundvallarþáttum málkerfisins
- öllum helstu framburðarreglum þýskunnar
- menningu og mannlífi þýskumælandi landa og þekki helstu samskiptavenjur
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- skilja lykilatriði texta t.d. blaða- og bókmenntatexta með meiri orðaforða en áður og vinna úr þeim á mismunandi hátt eftir tilgangi lestursins hverju sinni
- skilja talað mál um almenn kunnugleg efni og fyrirmæli kennara
- greina aðalatriði í kvikmynd þegar fjallað er um afmörkuð efni
- taka þátt í samræðum um þekkt efni og tjá skoðun sína um athæfi hversdagsins með því að beita kurteisis- og málvenjum við hæfi og geta spurt og svarað spurningum
- halda stutta kynningu á undirbúnu efni þar sem tungumálinu er beitt samkvæmt getustigi áfangans
- rita styttri texta um þekkt efni (útdrátt, umsögn, myndalýsingar) og geta tjáð skoðanir og ályktanir skriflega
- beita málfræði- og málnotkunarreglum úr fyrri áföngum
- hafa öðlast öryggi í notkun upplýsingatækni og hjálpargagna
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- tjá sig á tiltölulega einfaldan hátt, munnlega og skriflega um þekkt málefni og geta sagt frá skoðunum sínum og reynslu á flóknari hátt en áður
- bjarga sér á þýsku við hversdagslegar aðstæður í almennum samskiptum
- skilja aðalatriðin í mismunandi frásögnum og textagerðum og geta dregið ályktanir ef efnið er kunnuglegt
- geta metið eigið vinnuframlag og annarra
Nánari upplýsingar á námskrá.is