Seinni hluti
Einingafjöldi: 10
Þrep: 3
Forkröfur: HEST2KF03, REIM2KF05, FÓHE1GR03, FÓHE2HU03, VINU3SH02. Unnt er að taka starfsnámsáfangana, VINH2FH10 og VINH3SH10, hvern á fætur öðrum að uppfylltum skilyrðum undanfara.
Í áfanganum fer fram kynning og verkleg þjálfun á ýmsum störfum í hestamennsku. Meginviðfangsefni áfangans er að nemandinn fái að aðstoða við og framkvæma helstu verk sem unnin eru varðandi hrossahald starfsnámsstaðarins og auki þar með þekkingu sína, verkfærni og sjálfstæði í vinnubrögðum. Fái innsýn í í stjórn og rekstur tamningastöðvar/hrossabús/hestatengds ferðaþjónustufyrirtækis svo og þjálfun í mannlegum samskiptum. Fylgist með beitarástandi lands sem og kanni þjálfunarástand hesta. Nemandinn heldur dagbók yfir allt tímabilið þar sem koma fram lýsingar á daglegri vinnu auk lista yfir unnar klukkustundir. Einnig þarf hann að skrifa verklýsingar á verkþáttum starfsnámsins og gera þjálfunarplan fyrir a.m.k. 1 hest. Lögð er áhersla á það að nemandi fái tækifæri til að taka þátt í helstu verkum starfsnámsstaðarins og fái að grunnþjálfa hesta og fylgja eftir markvisst a.m.k. einum hesti. Fyrir þann hest er gerð þjálfunaráætlun og lagt mat á árangur við lok starfsnáms. Starfsþjálfunin fer fram að sumri. Það þarf að skila minnst 240 klukkustundum á ekki skemmri tíma en 6 vikum til að uppfylla skilyrði áfangans. Vinnutíminn skal falla að því starfi sem fram fer á starfsnámsstaðnum. Nemandi finnur sér sjálfur starfsnámsstað og umsjónarmann, sem verkefnisstjóri skólans þarf að samþykkja áður en starfsnám hefst. Hlutverk umsjónarmanns er að stjórna starfsnáminu á staðnum, kenna nemandanum og meta framvindu námsins.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- viðteknum starfsaðferðum og vinnulagi sem nýst getur í hestamennsku
- starfs- og ábyrgðarsviði starfsnema
- mismunandi vinnuaðferðir og nálgun við þjálfun hesta
- helstu þjálfunaraðferðum
- kostum og göllum mismunandi vinnuaðferða
- mati á tamningu og þjálfunarstigi hrossa.
- mati á beitilandi fyrir hross.
- markmiðasetningu í hestamennsku
- Þjálfunaráætlunum
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- tileinka sér viðeigandi vinnubrögð á starfsnámsstað
- leggja rétt mat á einfaldar aðstæður og taka sjálfstæðar ákvarðanir varðandi verklag.
- geta unnið sjálfstætt og af fagmennsku við afmörkuð verkefni
- Þekkja kosti og galla ólíkra vinnuaðferða
- meta beitiland fyrir hross
- meta þjálfunarástand hrossa
- vinna markvisst og búa til þjálfunaráætlun
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- sinna helstu verkefnum, verkþáttum og vinnubrögðum starfsnámsstaðarins
- sinna grunnþáttum er lúta hirðingu og aðbúnaði hesta
- aðstoða við faglega þjálfun hests
- geta brugðist rétt við algengustu óhöppum sem upp koma við ástundun hestamennsku
- nota mismunandi vinnuaðferðir og nálgun við þjálfun hesta
- meta þjálfunarástand hrossa á þartilgerðum matsblöðum
- sýna frumkvæði og fagmennsku við ólík úrlausnarefni á starfsnámsstaðnum
- setja sér markmið í hestamennsku og vinna kerfisbundið samkvæmt þeim
- hafa gott vald á eigin líkama, ásetu og stjórnun á hestbaki og nálgast fag sitt af ábyrgð og virðingu.
- nýta sér búnað og aðstöðu og fjölbreyttar aðferðir til að hámarka góðan árangur við þjálfun hests.
- grunnþjálfa hest á líkamlegum og andlegum forsendum hestsins, með tilliti til jafnvægis og góðs forms.
- setja upp skynsamlegar aðstæður við þjálfun hests og leggja mat á árangur.
- greina þjálfunarstig hesta og setja fram einfaldar þjálfunaráætlanir og fylgja þeim.
- nýta sér flestar fimiæfingar rétt við þjálfun þegar við á.
- þjálfa markvisst og geta bætt allar grunngangtegundir auks tölts.
- greina og bregðast á viðeigandi hátt við helstu sjúkdómum/vanheilsu hrossa.
- greina rétta og góða járningu fótstöðu.
Nánari upplýsingar á námskrá.is