bein, hreyfingarfræði, líffærafræði, vöðvar
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: Líffræði á öðru þrepi
Áfanginn er bóklegur, fræðilegur og verklegur - fjallað er um starfsemi mannslíkamans með áherslu á bein og vöðva. Sérstök áhersla verður lögð á þau líffæri og líffærakerfi sem tengjast hreyfingum mannslíkamans. Fjallað er um bein, bönd og liðamót, liðfleti og liðpoka. Einnig um hreyfingu í liðamótum og stefnu hreyfinga. Fjallað er um einstaka vöðva, upptök þeirra, festu og starf. Fjallað er um hugtök og grundvallaratriði hreyfifræðinnar og komið inn á tækni íþróttagreina. Áfanginn byggir að stórum hluta á starfrænni hreyfifræði, þ.e. hvernig vöðvar, bein og liðamót líkamans koma við sögu í fjölbreyttum hreyfingum. Nemendur gera æfingar með og án áhalda til að auka skilning sinn á því hvernig ákveðnar hreyfingar myndast í íþróttum. Enn fremur er fjallað um rétta lyftitækni, starfsstellingar og hreyfingar við vinnu.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- helstu vöðvum og vöðvahópum líkamans
- hlutverki beinagrindar og hreyfingum helstu liðamóta
- beinum, böndum og liðamótum líkamans
- helstu lögmálum hreyfifræðinnar
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- þekkja helstu vöðva líkamans, upptök þeirra og festu
- þekkja helstu bein líkamans, heiti þeirra og staðsetningu
- þekkja liðgerðir og hreyfingar þeirra
- vinna með helstu hreyfifræðilögmálin
- beita réttri lyftitækni
- nota réttar starfsstellingar
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- geta greint hreyfingu helstu vöðva líkamans út frá upptökum og festu þeirra
- geta greint frá staðsetningu og heitum helstu beina líkamans
- geta notað hreyfifræðilögmál til að skýra út ýmsar hreyfingar
- geta greint vöðvavinnu í ákveðnum æfingum
- geta greint muninn á réttri og rangri líkamsbeitingu
Nánari upplýsingar á námskrá.is