Íþróttasálfræði
Einingafjöldi: 3
Þrep: 3
Forkröfur: 5 einingar í sálfræði á öðru þrepi
Í áfanganum verður farið í grunnþætti íþróttasálfræðinnar og hvernig íþróttamaðurinn getur hagnýtt sér hana á ýmsa lund sér til eflingar og framdráttar í sinni íþróttaiðkun.
Skoðuð verða ýmis áreiti sem áhrif hafa á afreksgetu íþróttamanna. Ennfremur fjallar áfanginn um spennu (streitu) og helstu spennuvalda, slökun og hugrækt af ýmsu tagi. Skoðað verður hvernig vinna má með sjálfstraust og sjálfsmynd íþróttamannsins í því skyni að bæta árangur. Fjallað verður um muninn á einstaklings- og hópíþróttum og farið í áhrif félagslegra þátta á íþróttamanninn.
Efnisatriði:
Íþróttasálfræði, hvatning, íþróttaleiðtoginn/þjálfarinn, skynjun og viðbragðsþjálfun, andlegt ástand, spennustilling, slökun, íþróttir og greind, hugræn þjálfun, hópastarf, keppni eða ekki keppni.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- helstu áreitum sem herja á íþróttamenn
- þeim þáttum sem mynda sjálfsmynd íþróttamannsins
- mikilvægi hvatningar í íþróttum
- mikilvægi sálfræðiþekkingar í íþróttaiðkun og þjálfun
- helstu kenningum sálfræði sem tengjast íþróttaþjálfun
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- vinna markvisst með sjálfstraust og sjálfsmynd íþróttamannsins
- beita aðferðum til að draga úr keppnisspennu og streitu tengdri keppni og íþróttaiðkun
- nota þekkingu á sálfræði til að greina vandamál sem koma upp í íþróttaiðkun
- vinna með sálfræðikenningar sem tengjast íþróttum
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- minnka eða auka spennustig íþróttamanna í æfingu og leik
- hvetja iðkendur til dáða og fá þá til að leggja sig fram eftir mætti í leik og starfi
- greina aðstæður þar sem hægt er að beita sálfræðikenningum
- rökræða gildi sálfræði fyrir íþróttaiðkun og þjálfun
- útskýra mikilvægi sálfræði fyrir íþróttaiðkun og þjálfun
Nánari upplýsingar á námskrá.is